Bygg
Bygg

Fréttir

Innbrot í sumarbústað á Vatnsleysuströnd
Mánudagur 3. júní 2002 kl. 08:11

Innbrot í sumarbústað á Vatnsleysuströnd

Brotist var inn í sumarbústað á Vatnsleysuströnd í nótt. Þjófarnir komust á brott með ýmis handverkfæri sem voru í bústaðnum. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðann akstur á Garðvegi, sá sem hraðast ók, var á 141 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.Þá hafði lögregla einnig afskipti af vöruflutningabifreiðum í íbúðarhverfum, en bann við lagningu vörubifreiða í íbúðarhverfum er að finna í lögreglusamþykkt sveitarfélagana á Suðurnesjum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn