Mánudagur 21. júlí 2008 kl. 23:16
				  
				Innbrot í Listasmiðjuna á Vallarheiði
				
				
				
Tilkynnt var um innbrot í Listasmiðjuna við Víkingsstræti á Vallarheiði í dag, en fjögur fyrirtæki eru í þessu húsi. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki og er málið í rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum.