Innbrot í Heiðarskóla
Hjá Lögreglunni í Keflavík var tilkynnt um innbrot í eina af lausum skólastofum sem notaðar eru við kennslu í Heiðarskóla en þar var stolið myndbandstæki og gamalli tölvu. Lögreglan í Keflavík fer með rannsókn málsins. Í gær voru 7 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur. Fremur rólegt hefur verið á vöktum Lögreglunnar í Keflavík síðustu daga.