Þriðjudagur 4. apríl 2006 kl. 09:15
Innbrot í Grófinni
Á fyrsta tímanum eftir miðnæti tilkynnti vegfarandi lögreglu um innbrot í fyrirtæki í Grófinni í Keflavík. Hafði hann séð tvo dökkklædda menn á hlaupum frá innbrotsstað. Í ljós kom að þeir höfðu stolið Thoshiba fartölvu. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki.