Innbrot í fyrirtæki í Vogum
Aðfaranótt miðvikudags var framið innbrot í fyrirtæki í Vogum á Vatnsleysuströnd þar sem stolið var verkfærum af margvíslegu tagi. Á miðvikudag handtók Lögreglan í Keflavík mann sem grunaður er um verknaðinn og hefur maðurinn játað aðild að innbrotinu. Manninum var sleppt úr haldi lögreglunnar í gær, en hann hefur komið áður við sögu lögreglunnar.