Miðvikudagur 7. desember 2005 kl. 09:23
Innbrot í bifreið
Tilkynnt var um þjófnað úr bifreið við smurstöðina, Hafnargötu 86, til lögreglunnar í gærkvöldi. Hafði verið stolið úr bifreiðinni geislaspilara, hátölurum og geisladiskum. Mun það hafa gerst þann 2. desember sl.
Ekki er vitað hver stóð fyrir þjófnaðinum.