Innanríkisráðherra skipar starfshóp til að fara yfir Guðmundar- og Geirfinnsmál
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir svonefnd Guðmundar- og Geirfinnsmál. Starfshópurinn skal skila ráðherra áfangaskýrslu fyrir lok apríl á næsta ári.
Starfshópnum er falið að fara yfir málið í heild sinni en sérstaklega þá þætti sem snúa að rannsókn þess og framkvæmd rannsóknarinnar. Þau gögn sem komið hafa fram á síðustu misserum og árum verði tekin til athugunar. Í áfangaskýrslu komi fram hvort og þá til hvaða ráðstafana þurfi að grípa varðandi framhalds málsins. Starfshópurinn mun geta kallað sérfræðinga til ráðgjafar eftir því sem hann telur þörf á.
Starfshópinn skipa:
Arndís Soffía Sigurðardóttir, lögfræðingur og lögreglumaður, sem er formaður hópsins. Haraldur Steinþórsson, lögfræðingur og dr. Jón Friðrik Sigurðsson, yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss. Þá starfar með hópnum Valgerður María Sigurðardóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneyti.
Arndís Soffía er lögfræðingur, með próf frá Lögregluskóla ríkisins og hefur starfað sem lögreglumaður og varðstjóri. Hún starfar nú sem fulltrúi hjá sýslumannsembættinu á Selfossi.
Haraldur Steinþórsson er lögfræðingur á lögfræðisviði fjármálaráðuneytisins.
Dr. Jón Friðrik Sigurðsson prófessor starfaði um árabil sem sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins, hefur stundað kennslu- og rannsóknarstörf og hefur frá árinu 2001 verið yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss.
Almenningur hefur látið sig Guðmundar- og Geirfinnsmál varða. Þannig hefur innanríkisráðherra fengið í hendur 1.190 undirskriftir þar sem skorað er á ráðherra ,,að beita sér fyrir endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála, sem og rannsókn á vinnubrögðum þeirra sem fóru með rannsókn málanna,” eins og segir í inngangi áskorunarinnar.