Innanlandsflug frá Keflavík vinsælt meðal erlendra ferðamanna
-Sjö af hverjum tíu farþegum eru útlendingar
Flugfélag Íslands hefur boðið upp á stakar ferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar yfir sumarið undanfarin ár en í febrúar síðastliðnum hófst flug þar á milli allt að sex sinnum í viku. Á vef Túrista segir að samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands hafi rúm 2600 farþegar nýtt sér flugferðirnar í mars og apríl. Sjö af hverjum tíu farþegum á þessari flugleið eru erlendir ferðamenn. Þá segir að þetta sé í fyrsta skipti sem innanlands- og millilandaflug er tengt saman hér á landi yfir vetrarmánuðina.
Ódýrustu farmiðarnir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar kosta 10.580 krónur, báðar leiðir.