Ingigerður í framboð í Suðurkjördæmi
Ingigerður Sæmundsdóttir, verkefnastjóri í Reykjanesbæ og fyrrum blaðamaður á Víkurfréttum, ætlar að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi. Hún tilkynnti framboð sitt fyrir fáeinum mínútum á Facebook. Ingigerður ætlar að sækjast eftir 5. sæti á lista sjálfstæðismanna í kjördæminu.
Ingigerður Sæmundsdóttir tók nýberið við starfi verkefnastjóra FFGÍR í Reyjanesbæ, sem eru regnhlífarsamtök foreldrafélaga og foreldraráða grunnskólanna í Reykjanesbæ..
Ingigerður útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands 1997 og kenndi stærðfræði og upplýsingatækni í grunn- og framhaldsskólum í tíu ár. Hún lýkur meistaranámi í viðskiptasiðfræði frá Háskóla Íslands nú í vor. Hún býr í Reykjanesbæ og er gift Bjarna Jóhannssyni, knattspyrnuþjálfara og framhaldsskólakennara og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn.