Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

IGS skal ganga til samninga við Cargo Express
Miðvikudagur 1. júní 2011 kl. 10:21

IGS skal ganga til samninga við Cargo Express

- IGS talið hafa misnotað stöðu sína

Samkeppniseftirlitið hefur í dag tekið ákvörðun til bráðabirgða vegna synjunar IGS ehf. á Keflavíkurflugvelli á fraktafgreiðslu fyrir fyrirtækið Cargo Express ehf. sem býður upp á fraktflutninga með flugvélum Iceland Express. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu eftirlitsins er talið sennilegt að með synjuninni hafi IGS misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir sölu á fraktafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli.

IGS er dótturfélag Icelandair Group og þar með systurfélag Icelandair Cargo sem er með yfirburðarstöðu í fraktflutningum til og frá Íslandi. Í ákvörðuninni er þeim fyrirmælum beint til IGS að ganga þegar til samninga við Cargo Express um fraktafgreiðslu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024