Iðnaðarráðherra mælti fyrir frumvarpi um Helguvík
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra mælti í gærkvöldi fyrir frumvarpi um samning um álver í Helguvík. Ungliðar í Vinstri grænum, samstarfsflokki Samfylkingarinnar í ríkisstjórn, skora hins vegar á þingmenn sína að greiða atkvæði gegn samningnum. Áliðnaðurinn í heiminum sé í mikilli kreppu og allt tal um að álversuppbygging í Helguvík muni veita atvinnulausu fólki nauðsynleg störf sé því falsvon, sett fram af óheiðarlegum stjórnmála- og viðskiptamönnum.
www.visir.is greinir frá.