Fréttir

Icelandair prófar aðflug yfir Hvassahrauni
Föstudagur 20. janúar 2017 kl. 11:51

Icelandair prófar aðflug yfir Hvassahrauni

Samgöngustofa hefur upplýst Sveitarfélagið Voga um að á dögunum hafi beiðni borist frá Icelandair um flugprófanir í Hvassa-hrauni. Tilgangurinn er að meta veðuraðstæður í aðflugi að ímynduðum flugvelli í Hvassahrauni. 
 
Hannaðir hafa verið flugferlar að þremur flugbrautum, sem Icelandair hyggst fljúga aðflug að. Í þessum flugprófunum felst að flogið verður allt niður í 500 feta hæð sem samsvarar um 152 metra hæð yfir jörðu. 
 
Samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu verður flugið framkvæmt í fullu samræmi við gildandi flugreglur en ljóst að þotum Icelandair verður flogið í lægri flughæðum en vant er á þessu svæði.
 
„Sem kunnugt er var niðurstaða hinnar s.k. Rögnunefndar á sínum tíma sú að flugvöllur í Hvassahrauni væri vænlegasti kosturinn fyrir nýjan innanlandsflugvöll í jaðri höfuðborgarsvæðisins, kæmi til þess að Reykjavíkurflugvöllur yrði aflagður í núverandi mynd,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, í vikulegu fréttabréfi sínu í Vogum.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024