Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Icelandair íhugar að krefja ríkið um skaðabætur
Miðvikudagur 26. júlí 2006 kl. 02:39

Icelandair íhugar að krefja ríkið um skaðabætur

Icelandair er að skoða rétt sinn til að krefja ríkið um skaðabætur vegna kostnaðar , sem félagið hefur orðið fyrir vegna mikilla veikinda flugumferðarstjóra. Tafir hafa orðið vegna þessa og þar að auki hafi flugvélar félagsins ekki fengið að fljúga í hagkvæmustu flughæðum.

Svo dæmi sé tekið mættu aðeins sjö af þrettán flugumferðarstjórum, sem áttu að vera á vakt á sunnudag. Flugumferðarstjórar eiga í deilum við yfirstjórn Flugmálastjórnar um vaktafyrirkomulag, en Félagsdómur hefur úrskurðað að Flugmálastjórn væri heimilt að breyta skipulagi vaktanna.

 

Frá þessu er greint á Vísi.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024