Icelandair flýgur til New York í allan vetur
Icelandair mun fljúga til New York í áætlunarflugi í allan vetur, en undanfarin tvö ár hefur félagið gert hlé á flugi sínu í nokkrar vikur yfir háveturinn. Icelandair mun hinsvegar ekki bjóða upp á flug til og frá Minneapolis í um tvo mánuði í vetur, á tímabilinu frá 9. janúar til 13. mars 2006. Kemur þetta fram á vefsíðu Morgunblaðsins.
„Við teljum að afkoma af fluginu til New York geti orðið betri í vetur en við höfum séð fram á að undanförnu og það er mjög jákvætt. Hinsvegar hafa forsendur vetrarflugsins til Minneapolis breyst nokkuð og við teljum rétt að gera hlé á starfsemi okkar þar á þeim tíma sem minnst eftirspurn er“, er haft eftir Jóni Karli Ólafssyni, forstjóra Icelandair, í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Icelandair heldur uppi reglubundnu áætlunarflugi milli Íslands og 22 áfangastaða í Evrópu og Bandaríkjunum. Auk New York og Minneapolis flýgur félagið til Boston, Orlando, Baltimore, Washington og San Francisco í Bandaríkjunum.
VF-mynd úr safni