Icelandair ætlar að ráða 42 flugmenn

Ellefu menn hófu námskeið á B-757/767 flugvélum hjá félaginu í síðustu viku og er það fyrsti hópurinn. Í frétt á heimasíðu íslenskra atvinnuflugmanna kemur fram að mikil hreyfing er á flugmönnum milli félaga þessa mánuðina enda uppgangur hjá öllum íslensku flugfélögunum. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins vb.is.