Bygg
Bygg

Fréttir

Íbúum Suðurnesja fjölgaði um 1,537
Föstudagur 21. desember 2007 kl. 16:11

Íbúum Suðurnesja fjölgaði um 1,537

Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 1,537 á einu ári, voru 18,878 þann 1. desember 2006 en voru orðnir 20,415 í byrjun desember á þessu ári. Í Reykjanesbæ voru íbúar orðnir 13,256 talsins þann 1. desember en voru 11,926 á sama tíma fyrir ári.

Íbúum fjölgaði í öllum byggðalögum Suðurnesja á þessum tíma nema í Garði, þar sem þeim fækkaði um 35. Þar var íbúatalan 1,451 þann 1. desember síðastliðinn. Grindvíkingar voru 2,760, Vogamenn 1,225 og Sandgerðingar 1,723.
Þetta kemur fram í bráðabrigðatölum frá Hagstofu Íslands.

Bílakjarninn
Bílakjarninn