Íbúum Reykjanesbæjar fjölgar
Íbúafjöldi í Reykjanesbæ virðist nú þegar hafa náð þeirri tölu sem áætlað var að yrði fjöldinn í lok þessa árs. Íbúar voru 14.653 í lok apríl s.l. en gert var ráð fyrir í hóflegri áætlun Reykjanesbæjar að íbúafjöldi í lok árs 2014 yrði 14.655. Í lok síðasta árs voru íbúar alls 14.527. Frá þessu er greint á heimasíðu Reykjanesbæjar. Þar segir einnig að mest fjölgun íbúa sé í nýjum hverfum í Innri Njarðvík.
„Hér er talsvert um ungar fjölskyldur að setjast að og athyglisvert að jafnvel þótt önnur fyrirvinna heimilisins sæki vinnu í Reykjavík, velja menn að búa hér. Það er mjög ánægjulegt fyrir samfélagið enda fögnum við nýjum íbúum og bjóðum þau hjartanlega velkomin til okkar,“ segir Árni Sigfússon bæjarstjóri í fréttinni.