Bygg
Bygg

Fréttir

Íbúum fjölgar í Reykjanesbæ
Sunnudagur 6. maí 2012 kl. 13:08

Íbúum fjölgar í Reykjanesbæ



Íbúar í Reykjanesbæ voru alls 14.250 í lok aprí sl. Þeim hefur fjölgað um 113 frá áramótum, þegar íbúafjöldinn var 14.137. Þetta kom fram á íbúafundi með bæjarstjóranum í Reykjanesbæ í Innri Njarðvík sl.  mánudagskvöld.

Mikil íbúaaukning varð í Reykjanesbæ á árunum 2005-2008 en íbúafjöldinn hefur haldist tiltölulega jafn síðan.  Árið 2009 varð nokkur fækkun en haldist þessi tala hefur íbúafjöldinn ekki verið meiri áður í Reykjanesbæ.

Að sögn Árna Sigfússonar, bæjarstjóra skiptir mestu um íbúafjölgun að þegar Varnarliðið hvarf á braut í lok árs 2006, með tilheyrandi  starfahruni, var varnarsvæðinu að stórum hluta breytt í nemendakampus þar sem skólafélagið Keilir er. Nú hafa um 1000 manns útskrifast frá Keili og íbúar með lögheimili á umræddu svæði, að Ásbú í Reykjanesbæ eru um 1500.

Bílakjarninn
Bílakjarninn