Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúi handtekinn grunaður um íkveikju
Frá brunanum í morgun. VF-mynd: Guðni Grétarsson
Mánudagur 4. febrúar 2013 kl. 13:41

Íbúi handtekinn grunaður um íkveikju

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um hálftólf leytið í morgun þess efnis að eldur væri laus í gistiheimilinu Fit sem er dvalarstaður hælisleitenda í Reykjanesbæ. Óskað var eftir slökkvi- og sjúkraliði á staðinn. Þegar lögregla kom á vettvang mætti henni þykkt reykjarkóf og eldur logaði út um glugga á einu herbergi á efri hæð.

Lögreglumenn gengu úr skugga um að allir íbúar væru komnir út úr húsinu. Slökkviliðið réð niðurlögum eldsins fljótlega og hófst síðan handa við að reykræsta húsnæðið. Einn íbúi var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og  lagður inn vegna reykeitrunar. Annar íbúi var handtekinn og fluttur á lögreglustöð grunaður um íkveikju.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lögregla hafði samband við félagsmálayfirvöld til að tryggja að aðrir íbúar hússins kæmust í húsaskjól. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins, sem er á frumstigi, og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.