Fimmtudagur 3. maí 2001 kl. 11:59
Íbúðir fyrir aldraða í Garði

Á síðasta fundi hreppsnefndar Gerðahrepps var samþykkt tillaga frá fulltrúum F- listans meirihlutans að hefja könnun á möguleikum á að byggðar verði íbúðir fyrir aldraða í Garði. Um litlar íbúðir verði að ræða og byggt verði í nágrenni Garðvangs, þannig að hægt verði að nýta þjónustu þaðan. Sigurður sveitarstjóri sagði að fyrsta skrefið væri að skrifa öllum 60 ára og eldri í Garðinum til að kanna áhuga þeirra. Reyndist áhugi vera fyrir hendi yrðu næstu skref tekin í framhaldi af því.