ÍBÚÐASKORTUR
Mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði á Suðurnesjum. Í Víkurfréttum í dag auglýsa 12 aðilar eftir húsnæði og eingöngu ein íbúð er auglýst til leigu. Þetta ástand hefur varað lengi og er eftirspurn mun meiri en framboð. Fólk virðist einnig sætta sig við ýmislegt og auglýsir einn eftir íbúðarhæfu iðnaðarhúsnæði.