Íbúð rænd á meðan húsráðendur voru erlendis
Í hádeginu í gær var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr íbúðarhúsnæði á Kirkjubraut í Innri-Njarðvík. Farið hafði verði inn í húsið með því að spenna upp glugga. Heimilisfólkið hafði verði í útlöndum í tvær vikur. Búið var að stela ýmsum munum svo sem Playstation tölvuleikjum, um 400 geisladiskum í tösku, fatnaði, snyrtivörum, skartgripum og áfengi. Lögreglan óskar eftir að ná tali af þeim sem hugsanlega geta gefið upplýsingar um hverjir hafa verið hér að verki.





