Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Íbúaþing um menntastefnu Reykjanesbæjar í dag
Íbúaþingið verður haldið í Stapa í dag frá klukkan 16:45 til 19:00.
Þriðjudagur 8. mars 2016 kl. 10:31

Íbúaþing um menntastefnu Reykjanesbæjar í dag

Reykjanesbær heldur íbúaþing um nýja menntastefnu í Stapa í dag, 8. mars, frá klukkan 16:45 til 19:00. Allir sem hafa áhuga á skólamálum, íþróttum, tómstundum og forvarnarmálum eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum.

Eftirfarandi þættir verða til umræðu á íbúaþinginu:
 
• Hvernig stuðlum við sameiginlega að því að undirbúa unga fólkið okkar sem best undir það að verða virkir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi á 21. öldinni?
 
• Hvaða þekkingu og leikni  viljum við að börnin okkar og ungmenni tileinki sér með formlegri skólagöngu (leik-, grunn-, framhalds- og tónlistar)?
 
• Hvað viljum við að börnin okkar og ungmenni læri og tileinki sér með þátttöku í tómstundastarfi?
 
• Hvaða leiðir er hægt að fara til þess að efla samstarf milli heimila og skóla og hvetja foreldra til þátttöku og ábyrgðar?
 
• Hvað einkennir gott skólasamfélag?
 
• Hvaða leiðir er hægt að fara til þess að ýta undir áhuga nemenda og skuldbindingu til náms nægilega snemma svo framhaldsnám gangi vel og minna verði um brotthvarf?
 
• Hvaða leiðir förum við til að efla samstarf og auðvelda umskipti á milli leik og grunnskóla?
 
• Hvaða leiðir förum við til að efla samstarf og auðvelda umskipti á milli grunn- og framhaldsskóla?

 

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn
Bílakjarninn