Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Íbúaþing í Reykjanesbæ hefst á morgun
Föstudagur 9. september 2005 kl. 17:05

Íbúaþing í Reykjanesbæ hefst á morgun

Á morgun, laugardaginn 10. september n.k., verður íbúum Reykjanesbæjar og nágrennis boðið til íbúaþings, sem haldið verður í nýju og glæsilegu húsnæði Íþróttaakademíunnar við Menntaveg.

Þingið mun standa frá kl. 10:00 - 16:00 og geta þátttakendur verið með hluta af deginum eða setið allt þingið, að vild.  Veitingar eru í boði styrktaraðilla og barnagæsla verður á staðnum.  Ráðgjafarfyrirtækið Alta sem hefur umsjón með þinginu, en það hefur stýrt íbúaþingum víða um land.

Á íbúaþingi er verið að virkja þá ómældu þekkingu og umhyggju sem íbúar á hverjum stað  búa yfirleitt yfir.  Nýlegt dæmi frá Reykjanesbæ, þar sem hugmyd frá íbúum hefur leitt til breytinga er hugmynd leikskólabarna í Tjarnarseli um útsýnispall við Ægisgötuna, sem nú er orðinn að veruleika.

Meðal þess sem unnið verður með á þinginu eru hugmyndir íbúa um hvernig íbúar vilja sjá Reykjanesbæ og Reykjanesið allt vaxa og þróast, rætt er um umhverfismál, skipulagsmál, atvinnumál og samfélagsleg málefni, þ.m.t. skólamál.  Dagskráin samanstendur bæði af umræðuhópum og svokölluðum skipulagshópum, þar sem unnið er yfir kort og loftmyndir.   Rætt verður um málefni sem varða Reykjanesbæ, en einnig horft víðar yfir svæðið og Reykjanesið því allt undir. 

Á íbúaþinginu eru notaðar aðferðir sem gefa öllum jafna möguleika á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, enginn þarf að standa upp og halda ræður og ekki þarf að hafa neina sérþekkingu á skipulagsmálum.  Það er samdóma álit þeirra sem tekið hafa þátt í íbúaþingum Alta að það hefur verið gagnlegt, lærdómsríkt og umfram allt skemmtilegt.

Þegar þinginu verður slitið kl. 16 á laugardeginum er þó ekki öllu lokið, þar sem niðurstöður verða kynntar í máli og myndum strax á þriðjudagskvöldinu 13. september kl. 20, í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar geta íbúar séð úrvinnslu Alta á því hvernig hugmyndir margra og ólíkra einstaklinga, geta myndað eina heildarmynd fyrir Reykjanes og Reykjanesbæ.

Íbúar Reykjanesbæjar eru hvattir til að fjölmenna til íbúaþingsins og íbúar nágrannasveitarfélaganna eru einnig boðnir velkomnir.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024