Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúaþing í Garði
Miðvikudagur 17. október 2007 kl. 17:51

Íbúaþing í Garði

Bæjaryfirvöld í Garði hafa boðað til íbúafundar nk. mánudag 22. október. Þingið verður haldið í Gerðaskóla og stendur á milli kl. 19:30 og 22:00.

Hér á eftir fylgir dagskrá þingsins:
1. Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri setur þingið og fer yfir stöðuna í helstu málaflokkum.

2. Málstofur:
* Umhverfis-, bygginga- og skipulagsmál.
* Skóla-, tómstunda- og æskulýðsmál.
* Ferða- og menningarmál.
* Félags-, barnaverndar- og jafnréttismál.

3. Almennar umræður.

Þinggestir geta farið á milli málstofa en í hverri málstofu verða upplýsingar sem nefndarmenn og forstöðumenn bæjarins veita. Garðbúar eru hvattir til að mæta og nýta sér þetta tækifæri til að afla sér upplýsinga og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Texti af vef sveitarfélagsins. VF-mynd/Þorgils
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024