Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúarnir sjálfir stunda hraðakstur í sínu hverfi
Þriðjudagur 18. ágúst 2015 kl. 15:07

Íbúarnir sjálfir stunda hraðakstur í sínu hverfi

Níu einstaklingar voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Norðurvöllum í Keflavík á meðan könnun á umferðarhraða stóð yfir í götunni á tímabilinu 10. til 17. ágúst sl.

Umferðargreinir var settur upp í viku og kom í ljós að meðalhraði þessa viku reyndist vera 42 km/klst, en hámarkshraði á Norðurvöllum er 30 km/klst.

Lögreglan á Suðurnesjum setti einnig upp verkefni þar sem farið var á mismunandi tímum á Norðurvelli þar sem hraði ökutækja var mældur eftir að upplýsingar úr umferðargreininum lágu fyrir. Samtals voru lögreglumenn við mælingar í ellefu og hálfa klukkustund. Á þessum tíma voru níu ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur en sex þeirra eru íbúar í hverfinu.

Sá sem hraðast ók reyndist vera á 59 km/klst og reyndist það einnig vera íbúi í hverfinu.

Lögregla segist í tilkynningu á fésbókarsíðu sinni oft fá tilkynningar um of hraðan akstur í íbúðagötum í umdæminu og oft eru það því miður íbúar sjálfir sem eru að aka þessar götur og virða ekki hraðatakmarkanir.

„Nú skulum við öll leggjast á eitt og reyna að virða reglur um hámarkshraða. Nú fara skólarnir að byrja og út í umferðina flykkjast nú börn sem eru að stíga sín fyrstu spor í umferðinni. Förum varlega og höldum hraðanum niðri,“ segir lögreglan á Suðurnesjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024