Fréttir

Íbúar vilja botnlanga
Fimmtudagur 19. október 2017 kl. 12:24

Íbúar vilja botnlanga

Íbúar við Klapparstíg í Keflavík hafa óskað eftir því við umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar að gatan þeirra verði að botnlanga. Klapparstígur liggur frá Hafnargötu, yfir Túngötu og að Vallargötu. Ekið er inn í götuna frá Túngötu og hluti hennar, milli Túngötu og Vallargötu, er einstefnugata.

Með tilkomu Bónus við Túngötu hefur umferð um götuna aukist en hús standa mjög nærri götu og einstefna er á stundum ekki virt.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Skipulagsyfirvöld hafa samþykkt að senda erindi íbúanna í grenndarkynningu að gefinni jákvæðri umsögn slökkviliðs og lögreglu.