Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúar við Hraundal taka upp nágrannavörslu
Jóna Hrefna starfsmaður Umhverfis- og skipulagssviðs afhenti íbúum við Hraundal upplýsingar um nágrannavörslu
Mánudagur 27. október 2014 kl. 09:36

Íbúar við Hraundal taka upp nágrannavörslu

– Nágrannavarsla við ellefu götur í Reykjanesbæ.

Nágrannavörslu hefur verið komið upp við Hraundal í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með híbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú við ellefu götur í Reykjanesbæ.

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnadeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir starfsmaður umhverfs- og skipulagssviðs afhenti íbúum við Hraundal upplýsingar um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var einnig komið fyrir á staurum við Hraundal.

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Reykjanesbæ í síma 421 6700 eða á [email protected]. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024