Bygg
Bygg

Fréttir

Íbúar við Heiðarenda taka upp nágrannavörslu
Þriðjudagur 12. júní 2012 kl. 09:56

Íbúar við Heiðarenda taka upp nágrannavörslu


Nágrannavörslu hefur verið komið við Heiðarenda í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með hýbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú við tíu götur í Reykjanesbæ.

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar Lögreglunnar á Suðurnesjum. Guðlaugur H. Sigurjónsson framkvæmdarstjóri umhverfissviðs afhenti íbúum við Heiðarenda upplýsingar um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staurum við Heiðarenda.

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Reykjanesbæ í síma 421 6700 eða á [email protected]. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu.

Mynd: Guðlaugur H. Sigurjónsson framkvæmdarstjóri umhverfissviðs afhenti íbúum við Heiðarenda upplýsingar um nágrannavörslu

Bílakjarninn
Bílakjarninn