Íbúar við Birkidal taka upp nágrannavörslu
Nágrannavörslu hefur verið komið upp við Birkidal í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með híbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú við tólf götur í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnadeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Sigmundur Eyþórsson starfsmaður umhverfssviðs afhenti íbúum við Birkidal upplýsingar um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var einnig komið fyrir á staurum við Birkidal.
Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Reykjanesbæ í síma 421 6700 eða á [email protected]. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu.