Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Íbúar Starrmóa taka upp nágrannavörslu
Mánudagur 18. apríl 2011 kl. 09:42

Íbúar Starrmóa taka upp nágrannavörslu

Nágrannavörslu hefur verið komið á í Starrmóa í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú á Þórsvöllum, Birkiteig, Sjafnarvöllum, Fífudal, Mávatjörn, Lágseylu, Kjarrmóa og Lyngmóa. Starrmói er því níunda nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Starfsmenn umhverfissviðs afhentu íbúum Starrmóa upplýsingamöppu um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staur við Lyngmóa.

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann Umhverfis- og skipulagssviðs í síma 421 6700 eða á [email protected]. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu.