Íbúar Reykjanesbæjar orðnir 23 þúsund
Samkvæmt Gagnatorgi Reykjanesbæjar eru íbúar Reykjanesbæjar nú orðnir rúmlega 23 þúsund. Þeir skiptast þannig eftir hverfum að tæplega 9.900 búa í Keflavík, rúmlega 4.800 í Innri-Njarðvík, jafnmargir eða 4.800 á Ásbrú, 3.400 í Ytri-Njarðvík og 114 í Höfnum.
Karlkyns íbúar eru 55% og kvenkyns 45%. Alls hafa fimm íbúar náð 100 ára aldri og hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er 32%.
Frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar.