Fréttir

Íbúar Reykjanesbæjar að nálgast 15 þúsund
Sunnudagur 26. júlí 2015 kl. 10:13

Íbúar Reykjanesbæjar að nálgast 15 þúsund

Fjölgun íbúa Reykjanesbæjar hefur verið nokkuð jöfn og stöðug undanfarin ár eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Í desember sl. kom smá bakslag í þessa þróun en frá apríl 2015 hefur verið stöðug fjölgun. Ef að líkum lætur má búast við að fimmtánþúsundasti íbúinn fæðist um helgina en skv. upplýsingum frá bæjarstjóra var staðan 14.999 á föstudag.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024