Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúar mega gista í Grindavík um jólin
Ljósmynd: Eggert Jóhannsson
Föstudagur 22. desember 2023 kl. 16:28

Íbúar mega gista í Grindavík um jólin

Íbúar Grindavíkur mega gista í Grindavík um jólin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Samkvæmt gildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum. Gos getur hafist í Grindavík eða í næsta nágrenni með stuttum fyrirvara. Hefjist gos í Grindavík verður fátt um bjargir. Huga þarf fyrst að öryggi viðbragsaðila áður en kemur að björgun annarra. Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inn á hættusvæði. Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð. Viðbragð björgunarsveita verður skert. Engin björgunarsveit verður í Grindavík. Íbúar kalli eftir aðstoð með því að hringja í 112. 

Landsstjórn björgunarsveita hefur farið þess á leit við lögreglustjórann á Suðurnesjum að björgunarsveitir verði leystar undan daglegri viðveru eigi síðar en 22. desember 2023.  Dregið hefur úr þörf á viðveru björgunarsveita á svæðinu.  Þá reynist erfitt að manna vaktir björgunarsveita bæði í aðgerðastjórn og vettvangsstjórn hér á Suðurnesjum.   Slysavarnafélagið Landsbjörg er sjálfboðaliðafélag sem byggir á velvild atvinnurekenda og fjölskyldna björgunarsveitamanna.   Ekki hefur staðið á því hjá vinnuveitendum og aðstandendum að veita björgunarsveitamönnum það svigrúm sem þarf þegar öllum er ljóst mikilvægi þeirra verkefna sem björgunarsveitir sinna. Teikn eru á lofti um að dregið hafi úr þeirri góðvild undanfarið og mikilvægt að bregðast við þeirri stöðu.   

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Styrkur Slysavarnafélagsins Landsbjargar felst í því að koma til hjálpar þegar hið daglega viðbragð annar ekki verkefnum eða þegar sérþekkingar björgunarsveita í leit og björgun er krafist.  Björgunarsveitir gefa sig almennt ekki út í langtíma viðbragð nema um sé að ræða verkefni á sérsviði björgunarsveita í leit og björgun.  Björgunarsveitir hlaupa undir bagga þar til hið daglega viðbragð nær vopnum sínum og dagleg starfssemi viðbragðsaðila sem hefur raskast kemst aftur í jafnvægi.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur allt frá byrjun árs 2020 sinnt verkefnum vegna stöðugra jarðhræringa og eldgosa á Reykjanesskaga.   Þann 10. nóvember sl. var 3800 manna sveitarfélag rýmt og hafa íbúar þess og aðrir sem eiga þar hagsmuna að gæta þurft að sæta stöðugum takmörkunum á aðgengi að heimilum sínum og fyrirtækjum. 

Frá miðnætti hafa nokkrir tugir jarðskjálfta mælst við kvikuganginn á Reykjanesskaga.  Telst það lítil skjálftavirkni.  Engin gosvirkni er lengur sjáanleg við Sundhnúkagíga en enn er mögulegt að hraunrennsli sé í lokuðum rásum. 

Sérfræðingar Veðurstofunnar hittust á fundi í morgun kl. 9:30 þar sem farið var yfir nýjustu gögn og klukkan 13 fundaði Veðurstofan með lögreglustjóra og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.   Samkvæmt nýju hættumatskorti Veðurstofu er enn töluverð hætta á náttúruhamförum í Grindavík, sjá viðhengi.

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum að færa almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig þar sem eldgos sem hófst við Sundhnúkagíga 18. desember sl. virðist nú lokið.

Að öllu óbreyttu verður viðbúnaður lögreglu og björgunarsveita eins og hér greinir í og við Grindavíkurbæ.

Á þorláksmessu 23. desember 2023:

Lokunarpóstar verða á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi.

Íbúar í Grindavík, eigendur fyrirtækja og starfsmenn þeirra hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta allan sólarhringinn og íbúar mega gista í bænum.

Óviðkomandi einstaklingum verður ekki hleypt inn fyrir lokunarpósta að svo stöddu.

Helstu fjölmiðlar hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta.

Ábendingar frá lögreglustjóra fyrir daginn:

  • Landris er hafið á ný við Svartsengi.
  • Samkvæmt gildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum.
  • Gos getur hafist í Grindavík eða í næsta nágrenni með stuttum fyrirvara.  Hefjist gos í Grindavík verður fátt um bjargir.  Huga þarf fyrst að öryggi viðbragsaðila áður en kemur að björgun annarra.
  • Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inn á hættusvæði.  Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð. 
  • Viðbragð björgunarsveita verður skert þennan dag.  Engin björgunarsveit verður í Grindavík.  Kallið eftir aðstoð með því að hringja í 112. 
  • Hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð í síma inn á svæðinu með þessum texta:  RÝMING RÝMING!  Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð.  RÝMING RÝMING …….  EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.
  • Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn. 
  • Liðsmenn björgunarsveitarinnar í Grindavík eru dreifðir um landið og ekki til staðar í bænum.
  • Mögulegar flóttaleiðir:  Nesvegur, Suðurstrandarvegur, Grindavíkurvegur.

Á aðfangadag 24. desember 2023:

Lokunarpóstar verða á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi.

Íbúar í Grindavík, eigendur fyrirtækja og starfsmenn þeirra hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta allan sólarhringinn og íbúar mega gista í bænum.

Óviðkomandi einstaklingum verður ekki hleypt inn fyrir lokunarpósta að svo stöddu.

Helstu fjölmiðlar hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta.

Ábendingar frá lögreglustjóra fyrir daginn:

  • Landris er hafið á ný við Svartsengi.
  • Samkvæmt gildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum.
  • Eldgos getur hafist í Grindavík eða í næsta nágrenni með stuttum fyrirvara.  Hefjist gos í Grindavík verður fátt um bjargir.  Huga þarf fyrst að öryggi viðbragðsaðila áður en kemur að björgun annarra.
  • Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inn á hættusvæði.  Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð. 
  • Viðbragð björgunarsveita verður skert þennan dag.  Engin björgunarsveit verður í Grindavík.  Kallið eftir aðstoð með því að hringja í 112. 
  • Hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð á gsm síma inn á svæðinu með þessum texta:  RÝMING RÝMING!  Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð.  RÝMING RÝMING …….  EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.
  • Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn. 
  • Liðsmenn björgunarsveitarinnar í Grindavík eru dreifðir um landið og ekki til staðar í bænum.
  • Mögulegar flóttaleiðir:  Nesvegur, Suðurstrandarvegur, Grindavíkurvegur.

Á jóladag 25. desember 2023:

  • Hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð á gsm á síma inn á svæðinu með þessum texta:  RÝMING RÝMING!  Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð.  RÝMING RÝMING …….  EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.
  • Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn. 
  • Liðsmenn björgunarsveitarinnar í Grindavík eru dreifðir um landið og ekki til staðar í bænum.
  • Mögulegar flóttaleiðir:  Nesvegur, Suðurstrandarvegur, Grindavíkurvegur.

Á öðrum degi jóla, 26. desember 2023:

Lokunarpóstar verða á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi.

Íbúar í Grindavík, eigendur fyrirtækja og starfsmenn þeirra hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta allan sólarhringinn og íbúar mega gista í bænum.

Óviðkomandi einstaklingum verður ekki hleypt inn fyrir lokunarpósta að svo stöddu.

Helstu fjölmiðlar hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta.

Ábendingar frá lögreglustjóra fyrir daginn:

  • Landris er hafið á ný við Svartsengi.
  • Samkvæmt gildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum.
  • Eldgos getur hafist í Grindavík eða í næsta nágrenni með stuttum fyrirvara.  Hefjist gos í Grindavík verður fátt um bjargir.  Huga þarf fyrst að öryggi viðbragðsaðila áður en kemur að björgun annarra.
  • Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inn á hættusvæði.  Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð. 
  • Viðbragð björgunarsveita verður skert þennan dag.  Engin björgunarsveit verður í Grindavík.  Kallið eftir aðstoð með því að hringja í 112. 
  • Hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð á gsm síma inn á svæðinu með þessum texta:  RÝMING RÝMING!  Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð.  RÝMING RÝMING …….  EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.
  • Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn. 
  • Liðsmenn björgunarsveitarinnar í Grindavík eru dreifðir um landið og ekki til staðar í bænum.
  • Mögulegar flóttaleiðir:  Nesvegur, Suðurstrandarvegur, Grindavíkurvegur.

Staðan verður endurmetin miðvikudaginn 27. desember 2023.