Fréttir

Íbúar í Vogum á Vatnleysuströnd hamingjusamastir
Föstudagur 11. maí 2018 kl. 16:02

Íbúar í Vogum á Vatnleysuströnd hamingjusamastir

Íbúar í Vogum á Vatnleysuströnd hamingjusamastir samkvæmt skýrslunni „Íbúakönnun á Íslandi – staða og mikilvægi búsetuskilyrða 19 landsvæða á landsbyggðunum frá Hornafirði í austri að Skagafirði í norðri“ sem var kynnt í dag. Vífill Karlsson, hagfræðingur, dósent og ráðgjafi kynnti niðurstöðu könnunarinnar sem hann hefur unnið að síðustu ár. Þar kemur meðal annars fram að:
 
• Íbúar í Vogum á Vatnsleysuströnd eru hamingjusamastir.
 
• Ungir Íslendingar eru óhamingjusamari en þeir eldri.
 
• Íbúar á norðanverðum Vestfjörðum eru ánægðastir með búsetusvæði.
 
• Íbúar á Akranesi og í Hvalfirði eru ánægðastir með sveitarfélögin sín.
 
• Skagamenn eru auk þess ólíklegastir til að flytjast á brott á næstu tveimur árum.
 
Í könnuninni leitast Vífill meðal annars að við að kanna almenna velferð íbúanna, ánægju þeirra, framtíðaráhorf, búsetuskilyrði sem og stöðu 40 þátta er tengjast búsetuskilyrðum.
 
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa frá árinu 2004 gert íbúakönnun á þriggja ára fresti til að kanna viðhorf íbúa landshlutans til ýmissa mikilvægra mála og hvort sú afstaða taki breytingum frá einu ári til annars. Könnuninni er einnig ætlað að vera innlegg í rannsóknir á búferlaflutningum og vinnumarkaði á Vesturlandi.
 
Eftir allnokkuð þróunarferli var ákveðið að bjóða öðrum landshlutum að vera með. Það þáðu Suðurland, Reykjanes, Vestfirðir og Norðurland vestra og er þessi skýrsla samantekt og samanburður á þessum landsvæðum.
 
Meginmarkmið könnunarinnar var að draga fram afstöðu íbúa einstakra landshluta til ýmissa þátta sem telja má meðal mikilvægustu búsetuskilyrða heimilanna. Auk þess var grennslast fyrir um hvort fólk íhugaði brottflutning og ánægju þess með að búa á viðkomandi stöðum, svo eitthvað sé nefnt.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024