Fréttir

Íbúar í Suðurnesjabæ sýni áfram biðlund
Þriðjudagur 13. febrúar 2024 kl. 10:07

Íbúar í Suðurnesjabæ sýni áfram biðlund

HS Veitur biðja viðskiptavini í Suðurnesjabæ að sýna áfram biðlund fram yfir hádegi. Kerfinu hefur verið leyft að keyra sig rólega upp í nótt og verður vonandi búið að ná ágætist jafnvægi síðar dag en jafnvel ekki fullum þrýsingi fyrr en í kvöld.

Þó svo að heitt vatn sé komið í krana er eðlilegt að ekki sé kominn hiti á ofna og gólfhitakerfi þar sem fullum þrýstingi hefur ekki verið náð á kerfið eins og komið hefur fram, segir í tilkynningu fyrirtækisins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þjónustuver HS Veitna tekur á móti tilkynningum um bilanir í síma 422-5200 eða á netfangið [email protected]