Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúar í Lyngmóa taka upp nágrannavörslu
Miðvikudagur 23. febrúar 2011 kl. 10:47

Íbúar í Lyngmóa taka upp nágrannavörslu

Nágrannavörslu hefur verið komið á í Lyngmóa í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annars og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú á Þórsvöllum, Birkiteig, Sjafnarvöllum, Fífudal, Mávatjörn, Lágseylu og Kjarrmóa. Lyngmói er því áttunda nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu.

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum.

Starfsmenn umhverfissviðs afhentu íbúum Lyngmóa upplýsingamöppu um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var svo komið fyrir á staur við Lyngmóa.

Íbúar og nágrannar í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu, eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann USK í síma 421-6700 eða á [email protected].
Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með „Nágrannavörslu“.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024