Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 5. mars 2002 kl. 10:52

Íbúar í Garðahverfi mótmæla nýrra aðkomu að leikskóla

Íbúar í Garðahverfi í Keflavík hafa safnað saman undirskriftum 97% íbúa í Heiðargarði og Miðgarði á mótmæli við nýrri aðkeyrslu að leikskólanum Garðaseli í Keflavík. Finnst íbúunum að bæjaryfirvöld séu að troða á þeim og benda á að Heiðargarður sé fáfarin lokuð gata þar sem umferð sé mjög lítil. „Því miður hefur víða í sveitarfélaginu tekist illa með skipulagsmál en það tekur steininn úr ef klúðra á því sem vel hefur tekist,“ segir m.a. í mótmælum íbúanna.Undirskriftalisti með mótmælum var sendur til bygginganefndar og bæjarráðs Reykjanesbæjar. Formáli bréfsins var svohljóðandi:
„Okkur hefur borist grenndarkynning v/ stækkunar á leikskólanum Garðaseli. Rétt er að taka fram að við höfum ekkert á móti því að Garðasel verði stækkað ef bæjaryfirvöld sjá hagkvæmni í því.
En við viljum mótmæla því kröftuglega að aðalaðkoma verði færð vestan við Garðasel, þ.e.a.s. að Heiðargarði sem er fáfarin lokuð gata þar sem umferð er mjög lítil. Það er með ólíkindum að hönnuður slíkra breytinga sem þarna eru kynntar velji að beina umferð að þessu íbúðasvæði sem er eina íbúðasvæðið sem liggur nærri leikskólanum. Ef þessi breyting nær fram að ganga mun umferð á þessu svæði aukast til muna og rýra gæði viðkomandi gatna og auka slysahættu. Auk þess á að láta bíla taka U-beygju í Heiðargarðinum sem hlýtur að teljast fásinna.
Oft er á það minnst að Garðahverfi beri af í skipulagslegu tilliti sl. 30 ár hér í bæ og vonum við að svo verði sem lengst. Því miður hefur víða í sveitarfélaginu tekist illa með skipulagsmál en það tekur steininn úr ef klúðra á því sem vel hefur tekist.
Við viljum því skora á bæjaryfirvöld að skoða þetta mál af fullri alvöru og finna aðra leið í þessu máli. Ljóst er að við munum fylgja þessu máli eftir ef á þarf að halda og ekki linna látum fyrr en á lokastigi réttar okkar, sem heyrir undir umhverfisráðuneytið“.
Bílakjarninn
Bílakjarninn