Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúar í  Kjarrmóa taka upp nágrannavörslu
Mánudagur 21. júní 2010 kl. 09:17

Íbúar í Kjarrmóa taka upp nágrannavörslu


Nágrannavörslu hefur verið komið á Kjarrmóa í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú á Þórsvöllum, Birkiteig, Sjafnarvöllum, Fífudal og Lágseyla. Kjarrmói er því sjötta nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu.

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu síðasta sumar en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum.

Starfsmenn umhverfissviðs og fulltrúi frá Lögreglunni á Suðurnesjum afhentum íbúum götunnar merki og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staur við Kjarrmóa.

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann USK í síma 421 6700 eða á [email protected].
Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með „Nágrannavörslu“.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024