Íbúar á Vatnsleysuströnd vilja auknar hitaveituframkvæmdir
Síðastliðinn laugardaginn þann 9. apríl afhenti Birgir Þórarinsson bæjarstjóra, Eirnýju Valsdóttur áskorun íbúa á Vatnsleysuströnd til bæjarstjórnar. Íbúarnir skora á bæjarstjórn að beita sér fyrir auknum hitaveituframkvæmdum á Vatnsleysuströnd eða jöfnun húshitunar með öðrum hætti, frá þessu er greint á vogar.is.
Áskorunin var afhent á fundi er Jakob Árnason boðaði til á Auðnum. Hann fór yfir sögu leitar að heitu vatni á Auðnum. Rætt var um möguleika á frekari borunum og hugsanlega nýtingu á varma. Bæjarstjórn fagnar framtaki Jakobs og sér möguleika til framtíðar ef hægt verður að virkja orku á Vatnsleysuströnd.