Íbúafundur um skipulagsmál í Vogum
Bæjaryfirvöld í Vogum héldu á miðvikudag íbúafund um aðalskipulagsmál umhverfis bæinn. Um 40 manns mættu á fundinn sem fór fram í Tjarnasal í Stóru-Vogaskóla.
Fulltrúar frá Landslagi fóru yfir tillögur að nýju aðalskipulagi umhverfis Voga og bæjarstjóri fór yfir þjónustuþörf sem fylgir í kjölfar fjölgunar íbúa.
Í tillögunum er gert ráð fyrir að byggðar verði um 400 íbúðir, norðan Íþróttamiðstöðvar og um 80 íbúðir á miðbæjarsvæði sem áætlað er að verði staðsett á núverandi vatnstökusvæði bæjarins (austan Stapavegar). Á heimasíðu Voga kemur fram að allmargir hvöttu sér hljóðs og voru umræður bæði líflegar og málefnalegar. Fulltrúar Landslags, forseti bæjarstjórnar og bæjarstjóri sátu fyrir svörum.
Þetta var fyrsti fundurinn um aðalskipulagsmál. Stefnt er að því að halda annann fund um miðjan mars. Á þeim fundi er gert ráð fyrir að tekið verði til umræðu aðalskipulag bæjarfélagsins í heild.
Þeir sem vilja hafa áhrif á skipulagsferlið eru hvattir til að nýta sér þann rétt. Á heimasíðu bæjarins er hægt að nálgast skipulagstillögurnar og nokkur súlurit sem sýna hugsanlega þróun byggðar. Einnig er hægt að fá uppdrátt af tillögunum á skrifstofu bæjarins, fyrir þá sem kjósa það frekar.
Af heimasíðu Voga