Íbúafundur um skipulag hátíða í Suðurnesjabæ
Áætlað er að íbúafundur um skipulag hátíða í Suðurnesjabæ verði haldinn í Vörðunni 21. maí kl. 20:00. Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hefur falið formanni ráðsins að undirbúa fundinn.
Umræða um fyrirkomulag Sandgerðisdaga fór einnig fram á fundi ráðsins á dögunum. Ráðið myndi vilja sjá fyrirkomulag Sandgerðisdaga verða með sama hætti og Sólseturshátíðina í Garði þar sem félagasamtök tengd Suðurnesjabæ sjá um framkvæmdina.