Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Íbúafundur um nýja hjúkrunarheimilið að Nesvöllum
Þriðjudagur 12. nóvember 2013 kl. 11:30

Íbúafundur um nýja hjúkrunarheimilið að Nesvöllum

Reykjanesbær boðar til íbúafundar um samning Reykjanesbæjar við Hrafnistu um rekstur nýs hjúkrunarheimilis að Nesvöllum. Fundurinn verður haldinn á Nesvöllum miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 17:30 til 19:00.  Gerð verður grein fyrir skipulagi nýja hjúkrunarheimilisins, kynntar niðurstöður samkomulagsins við Hrafnistu og „lev og bo“ hugmyndafræðin sem Hrafnista hyggst vinna eftir á heimilinu.

„Við viljum kynna hinum almenna íbúa þá jákvæðu þróun sem er að verða hér með tilkomu nýja hjúkrunarheimilisins. Þetta á ekki aðeins við aðstandendur þeirra sem nú þurfa hjúkrunarpláss, öll eigum við ættingja hér á Suðurnesjum sem kynnu að þurfa þessa aðstöðu síðar. Svo kemur kannski einhvern tíma að okkur sjálfum, svo ég vona að sem flestir nýti sér kynninguna,“ segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024