Fréttir

Íbúafundur um Ljósanótt haldinn í kvöld
Þriðjudagur 29. janúar 2019 kl. 09:18

Íbúafundur um Ljósanótt haldinn í kvöld

Ljósanótt verður 20 ára næsta haust og í tilefni þeirra tímamóta er gott að líta yfir farinn veg með framtíðina í huga, segir á vef Reykjanesbæjar. Menningarráð hefur ákveðið að leita til bæjarbúa með því að bjóða þeim til spjallfundar með þjóðfundasniði um hátíðina og framkvæmd hennar í Stofunni í Duus Safnahúsum í kvöld, þriðjudaginn 29.janúar, kl. 19.30.
 
Ertu með hugmynd að viðburði, tónleikum, afþreyingu eða einhverju öðru skemmtilegu á Ljósanótt? Eða langar bara að taka þátt í umræðum. Íbúar eru hvattir til að taka þátt í fundinum!
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024