Íbúafundur um kísilver í kvöld
Íbúafundur um kísilver Stakksbergs í Helguvík verður haldinn í Hljómahöll í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20:00. Stakksberg, eigandi kísilversins, boðar til fundarins.
Á fundinum munu ráðgjafar fyrirtækisins kynna fyrirhugaða vinnu við nýtt umhverfismat og hvernig aðkoma almennings verður tryggð í því ferli.
Fundinum verður í beinni útsendingu á Facebook-síðu Víkurfrétta og vf.is.