Íbúafundur um fjármál Reykjanesbæjar í kvöld
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, heldur opinn íbúafund um fjármál Reykjanesbæjar í kvöld fimmtudaginn 28. jan. nk. kl. 20:00 í Bergi, Hljómahöll. Á fundinum mun bæjarstjóri fara yfir nýsamþykkta fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2016-2019 og framtíðarhorfur í rekstri sveitarfélagsins. Einnig gefst fundarmönnum kostur á að koma með spurningar.