Íbúafundur í Sandgerði í kvöld
Haldinn verður íbúafundir í Grunnskólanum í Sandgerði í kvöld vegna mögulegrar sameiningar Garðs og Sandgerðis. Fundurinn hefst kl. 20 og er öllum opinn. Stýrihópur sem vinnur að úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna boðar til íbúafunda í báðum sveitarfélögunum til kynningar á niðurstöðum úttektar. Ráðgjafar KPMG munu kynna helstu niðurstöður greiningar varðandi sameiningu sveitarfélaganna, næstu skref og að því loknu verða umræður.
Íbúafundur í Garði verður svo næstkomandi miðvikudag, í Miðgarði, sal Gerðaskóla kl. 20:30.