Íbúafundur í Reykjanesbæ á fimmtudag
	Íbúafundur vegna rafrænnar íbúakosningar í Reykjanesbæ 24. nóvember til 4. desember, um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík, verður haldinn í Stapa fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20:00.
	
	Á fundinum verður tilurð og fyrirkomulag kosningarinnar kynnt, ásamt sjónarmiðum bæjaryfirvalda og íbúa sem eru mótfallnir deiliskipulagsbreytinni í Helguvík.
	
	Boðið verður upp á umræður og fyrirspurnir úr sal að erindum loknum.
	
	Vefur um íbúakosninguna hefur verið opnaður á slóðinni www.ibuakosning.is (Íslenska, English, Polski). Þar eru að finna allar upplýsingar um fyrirkomulag kosningarinnar, sjónarmið bæjaryfirvalda og íbúa sem eru mótfallnir deiliskipulagsbreytingunni á íslensku, ensku og pólsku.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				