Íbúafundur í Innri-Njarðvík í kvöld
Íbúafundur verður haldinn í Akurskóla í kvöld kl. 20 þar sem fyrirhuguð breyting á aðal- og deildiskipulagi á Hákotstanga í Njarðvík, svokölluðum Brynjólfsreit. Þar munu fulltrúar frá umhverfis- og skipulagssviði ásamt arkitekt/hönnuði skipulagsins og kynna tillögurnar og svara tillögum íbúa.
Þar stendur til að stækka íbúasvæði til norður og suðurs og m.a. að reisa fjögur 13 hæða háhýsi, en til samanburðar má geta þess að blokkirnar við Mjódd í Reykjavík eru einnig 13 hæðir.
Meðal þeirra spurninga sem brenna á íbúum eru hvort þurfi að fara fram mat á umhverfisáhrifum, en íbúar kvíða einnig stóraukinni umferð um íbúðargötur.