Langbest þakkargj
Langbest þakkargj

Fréttir

Íbúafundur í Garði á fimmtudag
Þriðjudagur 20. febrúar 2007 kl. 21:05

Íbúafundur í Garði á fimmtudag

Íbúafundur um framtíðarsýn Sveitarfélagsins Garðs fyrir árin 2007 – 2010 verður haldinn fimmtudaginn 22. febrúar kl. 20:00 á veitingahúsinu Flösinni á Garðskaga. 

Fjallað verður um eftirfarandi:
· Skólastarf
· Æskulýðsstarf og íþróttir
· Félagsþjónustu Sandgerðis, Garðs og Voga
· Forvarnir í fjölskyldumálum
· Samfélagsþjónustu við eldri borgara
· Umhverfismál
· Samgöngur
· Ferða- og menningarmál
· Fjölmenningu
· Stjórnsýslu
· Uppbyggingu og skipulag
· Atvinnumál

Boðið verður upp á fyrirspurnir eftir kynningu á hverjum málaflokki og almennar umræður í lokin.

Á heimasíðu bæjarins eru Garðbúar hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér framtíðarsýn fyrir Garðinn, ásamt því að setja fram ábendingar um breytingar eða viðbætur ef þeim sýnist svo.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100